top of page

Löggiltir endurskoðendur nýta Arango Áreiðanleikakannanir

Löggiltir endurskoðendur reka bókhalds- og endurskoðunarskrifstofu í Kópavogi en hjá fyrirtækinu starfa um 15 starfsmenn sem hafa víðtæka reynslu af sviði endurskoðunar, skattamála, ársreikningagerðar auk almennrar viðskiptaþjónustu fyrir stór sem smá fyrirtæki.


Áskoranir

Fyrirtækið stóð frammi fyrir því að þurfa að halda utan um gerð áreiðanleikakannana fyrir mikinn fjölda viðskiptavina, áhættumeta þá, fletta upp raunverulegum eigendum og kanna stjórnmálaleg tengsl. Þetta er gert í þeim tilgangi að kanna uppruna fjármagns til að uppfylla skyldu samkvæmt lögum um um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Borið hefur á því að fyrirtæki sem vanrækja þessa ferla þurfi að hlíta háum fjársektum frá yfirvöldum.


Lausnin - Arango Áreiðanleikakannanir

Löggiltir Endurskoðendur tóku í notkun Arango Áreiðanleikakannir til að halda utan um allt ferli sem snýr að gerð áreiðanleikakannana, áhættumats og könnun á stjórnmálalegum tengslum. Eins innleiddi fyrirtækið CRM lausnir til að bæta skilvirkni ferla í samskiptum við viðskiptavini.

Nánar um lausnir Arango fyrir fjármálafyrirtæki og tilkynningaskylda aðila: Arango lausnir


Ávinningur

“Við hjá Löggiltum endurskoðendum höfum notað lausnir Arango við gerð áreiðanleikakannana nú í um 2 ár. Lausnirnar hafa sparað okkur gríðarlegan tíma og vinnu ásamt því að bæta verkferla og utanumhald um gerð áreiðanleikakannana og áhættumats á okkar viðskiptavinum. Með lausnum Arango eykst sjálfvirkni við þessa ferla til muna en hægt er að framkvæma áreiðanleikakannanir á fjölda viðskiptavina í einu. Sjálfkrafa birtir kerfið upplýsingar um gildandi skráningu ásamt því að flett er upp í PEP og Sanction listum til athugunar á viðskiptavinum.“ Segir Andrés Hilmarsson, endurskoðandi og eigandi Löggiltra endurskoðenda ehf. 



“Á þessum tíma höfum við farið í gegnum úttekt frá Skattinum á þessum ferlum og stóðust kerfin allar skoðanir skattsins og sýnt okkur fram á að við uppfyllum að fullu íslensk lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Það er mikils virði að geta treyst á áreiðanleika kerfisins þar sem fjárhagslegur skaði getur verið töluverður ef ekki er nægilega vel haldið utan um þessi málVið erum mjög ánægð með samstarfið við Arango og höfum nú ákveðið að auka samstarf okkar og bæta við kerfin okkar CRM lausnum til utanumhalds samskipta við viðskiptavini, samninga og auka frekar stafræna þróun verkferla.” segir Andrés

 

Til nánari upplýsinga hafið samband við Arango: arango@arango.is


bottom of page